Bobby.is - Netverslun með garn og prjóna

Persónuverndarstefna

Tilgangur og lagaskylda

Bobbýjardætur safna og meðhöndla persónuupplýsingar og leitast við að uppfylla í hvívetna lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í persónuverndarstefnu þessari kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn.

Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.

Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga

Bobbýjardætur safna og varðveita persónuupplýsingar um viðskiptavini og tengiliði, svo sem samskiptaupplýsingum (nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer, netfang), samskiptasögu og upplýsingum um vörukaup og reikningsviðskipti.

Bobbýjardætur notar vafrakökur, Google Analytics, Facebook Analytics, Instagram Analytics og Shopify Analytics til vefmælinga og safnast þar m.a. landfræðilegar upplýsingar og upplýsingar um aldur og kyn.

Upplýsingunum er safnað svo Bobbýjardætrum sé unnt að efna samninga sína við viðskiptavini, til að gæta hagsmuna sinna og til að miðla til viðskiptavina upplýsingum í markaðslegum tilgangi.

Upplýsingar eru ekki geymdar lengur en nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu, nema ef lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma.

Skoða vafrakökustefnu

Markpóstur

Bobbýjardætur kunna að senda tölvupóst á tengiliði sem eru á tölvupóstfangalista Bobbýjardætra. Ef þú óskar ekki eftir því að vera á tölvupóstlista Bobbýjardætra getur þú ávallt afskráð þig.

Miðlun upplýsinga

Bobbýjardætur nýta aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir.

Bobbýjardætur miðla ekki persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila nema að fengnu samþykki, í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, á grundvelli lögmætra hagsmuna eða á grundvelli lagaskyldu.

Bobbýjardætur leggja áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta og viðeigandi tæknilegar og öryggislegar ráðstafanir sé gerðar til að tryggja öryggi gagna.