Skilmálar
Bobbýjardætur ehf. – garn og fylgihlutir ehf.
Breiðumörk 13, 810 Hveragerði
Kt: 530421-2010 VSK nr: 141004.
bobbyjardaetur@gmail.com
S: 774-2324
Afhendingartími
Afhendingartími er 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag og sendar með B-pósti hjá Íslandspósti.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Hægt er að fá sendingu á næsta pósthús eða heimsendingu upp að dyrum. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 12.000 kr. eða meira. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að rétt heimilisfang sé skráð á pöntun. Einnig er hægt er að sækja vörurnar á Breiðumörk 13, 810 Hveragerði
Greiðslur
Hægt er að greiða með Visa og Mastercard, eða millifærslu.
Ef greitt er með Visa eða Mastercard er korthafi fluttur á örugga greiðslusíðu valitor.is þar sem greiðslur eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi. bobby.is tekur hvorki við né geymir kortaupplýsingar og útilokað er fyrir utanaðkomandi aðila að nálgast upplýsingar um kortanúmer.
Einnig er hægt að greiða með millifærslu. Kaupandi fær sendan tölvupóst með reikningsupplýsingum fyrirtækisins. Staðfesta skal millifærslu með því að senda kvittun úr heimabanka á info@bobby.is. Ef staðfesting á millifærslu hefur ekki borist innan 24 klst frá pöntun telst hún ógild.
Verð
Bobby.is áskilur sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp sökum prentvillna. Öll verð í vefverslun eru birt með virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Við látum viðskiptavini vita ef vara er ekki til á lager og endurgreiðum vöruna.
Vöruskil
Ef vara uppfyllir ekki væntingar kaupanda er hægt er að skila henni innan 14 daga frá pöntun. Þegar vöru er skilað skal hún vera ónotuð, í upphaflegum umbúðum og kvittun þarf að fylgja. Kaupandi getur óskað eftir inneignarnótu vilji hann ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru. Sé óskað eftir því að skila vöru skal hafa samband í tölvupósti á bobbyjardaetur@gmail.com. Ekki er hægt að skila tilboðsvörum.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir héraðsdómi Suðurlands.